Samkvæmt áætlun á fyrsta útgáfa (first release) að vera tilbúin 14 maí 2010
Lesa meiraÍ dag voru afhent verðlaun til vinningshafa nafna og slagorðssamkeppni áfangans fyrir nafn á rekstrinum ásamt slagorði.
Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir viðamikilli rannsókn á forsendum rafvæðingar einka- og almenningssamgangna í Reykjavík. Með verkefninu er ætlunin að sjá betur hvernig ber að standa að rafvæðingunni, með hvaða leiðum og hvar sóknartækifærin eru. Einnig er ætlunin að fá breiðari innsýn í ávinning þess að nota innlenda orku til einka- og almenningssamgangna.
Verkefnið sem þessi síða snýr að gengur út á þróun og hönnun rafbíla samnýtingar kerfis og reksturs fyrir Háskólann í Reykjavík. Markmiðið er að koma þesslags kerfi í liðinn þar sem nemendur og starfsmenn geta fengið rafbíla leigða fyrir styttri ferðalög. Með slíku kerfi væri stuðlað að nýtingu innlendrar og vistvænnar orku í samgöngum auk þess að hjálpa til við að gera samgöngur í kringum skólann greiðari. Nú er til staðar einn bíll (og annar handan við hornið) fyrir áætlaðan rekstur sem vonandi getur hafist eftir vorönn 2010. Þeir bílar sem verða notaðir eru vopnaðir tækjum til gagnaskráningar til að nota í framtíðar verkefnum á sviði rafbílavæðingar í Reykjavík