Reykjavík University Projects

Dagbók

Nýtt hleðslutæki - 16.1.2011

Hleðslutækið úr Kangoo fékk nýtt hlutverk í byrjun nóvember þegar það var sett í Peugeot 106 sem skólinn á einnig. Í staðinn var fengið Brusa hleðslutæki fyrir Kangoo.

 

9f36d863aa

Lesa meira
 

Rafhlöðuhitarar - 3.5.2010

Við prófanir á bílnum í kulda kom í ljós að rafhlöðurnar halda illa spennu og geta ekki gefið nægjanlegt afl til að bíllinn sé nothæfur í kulda og frosti.

Lesa meira
 

Drifhlutfall - 3.5.2010

Þegar bílnum var ekið í fyrsta skipti kom í ljós að drifhlutfallið var of hátt til að nýtni bílsins yrði sem best. Hásingin sem var í bílinn var úr Toyota touring 1992 módel. Hún var með hlutafllið 3,15:1. Einnig reyndist annar öxull hásingarinnar vera töluvert boginn svo nauðsynlegt reyndist að skipta um hann.

Lesa meira
 

Verkefni skilað - 3.5.2010

Föstudaginn 12. febrúar voru lokaskil á verkefninu. Vörnin var opin öllum nemendum skólans og vel var mætt. Skýrslan taldi á endanum 320 blaðsíður og hana er hægt að nálgast á bókasafni skólans.

IMG_3574_low

Lesa meira
 

Könnun á drægni - 2.5.2010

Tilraun var gerð á drægni bílsins laugardaginn 6. febrúar. Bílnum var ekið frá byggingu háskólans við Nauthólsvík að hringtorginu við Leifsstöð og til baka sem eru 96,4km. Tilraunin var gerð í nánast logni við -4°C frost.

Lesa meira
 

Búið að tengja Rafhlöðurnar !!! - 18.1.2010

Jæja þá er búið að setja rafhlöðurnar í bílinn og tengja þær.  Einnig er búið að tengja rafhlöðustjórnunarkerfið (BMS).  Í allt þá voru þetta um 500 tengingar.

 rafbill-jan-177

Lesa meira
 

Rafhlöðurnar eru komnar !!! - 13.1.2010

Loksins Loksins þá eru rafhlöðurnar komnar frá Kína.  Við brunuðum í morgun niður í Sundahöf og sóttum sendingu. Og þá tók við okkur miður skemmtileg sýn...rafbill-jan-174 Lesa meira
 

Allt á fullu. - 11.1.2010

Núna eru bara nokkrir dagar í að rafhlöðurnar koma. Þær eru búnar að ferðast hringinn í kringum hnöttinn á skipi, sloppið framhjá sjóræningjum og er loks að koma til landsins eftir tveggja mánaða ferðalag rafbill-jan

Lesa meira
 

Flutningur - 1.1.2010

Núna milli jóla og nýárs tókum við rafbílasmiðirnir upp á því að flytja allt okkar dót í nýja aðstöðu að Höfðabakka 9. Þetta er fyrirmyndar aðstaða með öllu sem þarft til að smíða rafbíl, fyrir utan hita.

 IQinVision

Lesa meira
 

Rífandi gangur í rafbílasmíði - 11.12.2009

Rafbílahópurinn skilaði uppkasti af skýrslu á föstudaginn síðasta. Uppkastið var 16.862 orð  af eintómri snilld. Á mánudaginn var svo hafist handa aftur við smíði bílsins og hefur verkið rokið áfram eftir skýrslugerðina.

Lesa meira
 

Ritgerðarsmíði - 30.11.2009

Rafbílahópurinn situr þessa dagana innilokaður í skólanum að skrifa ritgerð um verkefnið sem á að skila 4. desembercomputer-toilet Lesa meira
 

Góður dagur á opnu húsi - 19.11.2009

rafbill-nov-128

Opna hús gekk frábærlega í dag. Um það bil 70 manns eru búin koma og skoða bílinn

 

Lesa meira
 

Opið hús !!! - 18.11.2009

Opið hús verður hjá okkur 19. og 20 nóvember á milli 13:00 og 20:00rafbill-14 Lesa meira
 

Piltarnir í Íslandi í dag - 17.11.2009

Núna í morgunsárið kom Ísland í dag og tók viðtal við okkur. Við stömuðum okkur í gegnum þetta Lesa meira
 

Heimsókn frá Víkurskóla - 12.11.2009

í dag komu til okkar krakkar úr 6. bekk í Víkurskóla. Krakkarnir vildu fræðast um rafbíla og hvernig þeir virkuðu. Lesa meira
 

Græjurnar komnar - 11.11.2009

Í dag voru jólin hjá okkur í rafbílahópnum, þar sem að það kom sending frá EV Components með hleðslutækinu, DC/DC converterinum, Vacuum dælunni og BMS kerfinu rafbill-nov-051

Lesa meira
 

Búið að smíða rafhlöðukassa - 11.11.2009

rafbill-nov-029

Jæja núna erum við búnir að smíða kassa sem munu halda utan um rafhlöður bílsins. Alls eru þetta þrír kassar

 

Lesa meira
 

Mótorinn kominn í !!! - 7.11.2009

Jæja núna erum við búnir að smíða festingar fyrir mótorinn og koma honum fyrir í bílinn. Þar sem að við settum mótorinn í miðjan bílinn þá þurftum við að styrkja bíllinn þar. Mótorinn er svo látinn halla á móti hásingunni til að minnka tap í hjöruliðum.

Lesa meira
 

Rafbílaverkefnið á Alþjóðlegu Athafnavikunni - 2.11.2009

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur ákveðið að halda viðburð á Alþjóðlegri Athafnaviku. Háskólinn er að breyta bensínbíl í rafbíl og vill því gefa fólki tækifæri að sjá og fræðast um smíði rafbíls.

Lesa meira
 

Sjá alla dagbókina



 

Leit


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica