Reykjavík University Projects
Dagbók

Bíllinn orðinn afturhjóladrifinn

28.10.2009

Það er heldur betur mikið búið að ganga á undafarnar vikur. Við erum búnir að fjárfesta í eðal gulum Renault Kangoo. Þessi glæsikerra er árgerð 1999 og mun nú verja eftirlifandi ævidögum sem Rafbíll. 

rafbill-14

Á sama tíma stukkum við til og pöntuðum okkur 3 fasa mótor og stýringu. Við fengum þennan mótor á mjög góðu verði, seinna meir fundum við ástæðu þess afhverju mótorinn var svona ódýr því líklega kom hann úr oltinni Raf-rútu. Mótorinn heitir AC55 og er 70 KW sem gerir ca. 93 hestöfl sem er töluvert meira en við gerðum ráð fyrir en það er bara skemmtilegra.

Um leið og mótorinn var kominn til landsins var hafist handa við að setja mótorinn á gírkassann en fljótlega kom í ljós að mótorinn og gírkassinn vildu ekki vera vinir og pössuðu ekki saman. Nú voru góð ráð dýr og eftir töluverðar vangaveltur fram og til baka var ákveðið að smella hásingu undan Toyota Touring undir Kangooinn og gera hann afturhjóladrifinn og setja mótorinn í miðjan bílinn, svona eins og er í Ferrari.

Núna erum við að bíða eftir Lithium Ion rafhlöðunum frá Kína sem kostuðu allan peninginn og vonandi koma þær ásamt öllu hinu dótinu í byrjun næstu viku.  Einnig erum við sveittir við að hanna og smíða ýmsar rafrásir svo að bíllinn muni nú virka eins og skildi.

Endilega kíkið á vefmyndavélina og fylgjst með framvindu bílsins.

Rafbílahópurinn

Guðjón, Hjörtur og Hrafn



 

Leit


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica