Reykjavík University Projects

Hringferð

Sjötti dagur 23. maí

Þá er hringferð litla gula rafmagnsbílsins lokið. Við vitum ekki betur en að þetta sé í fyrsta skipti sem rafbíl er ekið hringinn í kringum Ísland og erum við bara hæstánægðir með ferðina. Nokkrar smábilanir og vesen kom upp eins og við á að búast en ekkert sem við gátum ekki reddað.20100523_0125

Lesa meira
 

Fimmti dagur 22. maí

Dagurinn var tekinn seint í eða kl 11:00 eftir góða pizzu í gærkvöldi. Ekið var frá Akureyri að Varmahlíð sem eru 96 km. Enginn góður tengill fannst í Varmahlíð svo haft var samband við mann sem seldi okkur öxul í bílinn en hann býr í Þormóðsholti rétt hjá Varmahlíð. Bóndanum þótti það nú lítið mál og bauð okkur velkomna til sín.20100522_0032

Lesa meira
 

Fjórði dagur 21.05.2010

Þá er fjórða degi hringferðainnar lokið. Ferðin byrjaði kl 7:00 með því að skipta enn einu sinni um rafgeymi í Kangoo. Eftir rafgeymaskiptin var ekið að Laugum í Reykjadal þar sem átti að hitta nemendur í Litlulaugaskóla og hlaða bílinn. Nemendur í skólanum tóku vel á móti okkur og fengu að smíða kók klukkuna og rafmótor.Rafbilaferd-043

Lesa meira
 

Þriðji dagur 20.05.2010

Dagurinn var tekinn snemma á Djúpavogi til að ná til Breiðdalsvíkur í tíma. Þegar komið var að bílnum sem var í hleðslu á tjaldstæðinu sást að tengillinn sem við höfðum tengt bílinn við var útsleginn. Ekki var með nokkru móti hægt að sjá hversu mikil hleðsla var inni á rafhlöðunum þar sem spennan var kominn upp í málspennu en hún er þar 80% af tímanum.Rafbilaferd-049

Lesa meira
 

 

Leit


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica