Reykjavík University Projects
Dagbók

Drifhlutfall

Þegar bílnum var ekið í fyrsta skipti kom í ljós að drifhlutfallið var of hátt til að nýtni bílsins yrði sem best. Hásingin sem var í bílinn var úr Toyota touring 1992 módel. Hún var með hlutafllið 3,15:1. Einnig reyndist annar öxull hásingarinnar vera töluvert boginn svo nauðsynlegt reyndist að skipta um hann. Leitað var að hlutfalli í þessa hásingu innanlands og á internetinu. Það kom í ljós að markaður með svona gamlan búnað er ekki mikill og eftir mikla leit var farið að skoða aðrar hásingar og aðra möguleika því nýtt hlutfall í þessa hásingu fannst ekki á ásættanlegu verði. Farið var um allan bæ og leitað að bílum með afturhásingu og þær mældar og skoðaðar. Eins og við höfðum fundið út áður var ekki um marga bíla að velja. Helst Toyota touring 1994 og eldri og Volvo 240 og 740. Aðrar hásingar voru með of stórar bremsuskálar eða breiddin hentaði ekki.

Eftir miklar vangaveltur og pælingar var fengin hásing úr 23 ára gömlum Volvo 740. Samkvæmt okkar upplýsingum á þeim tíma var hún með Dana 30 hlutfall sem er algengt í framdrifum á jeppum. Volvo hásingin hentaði ekki jafn vel og Toyota hásingin þar sem hún er fimm gata og 13“ felgur passa ekki á hana. Mikil vinna var lögð í að breyta gatadeilingu og renna öxlana svo venjulegar 14“ 4:100 felgur mundi passa undir bílinn þar sem 14“ Volvo felgur eru svo útvíðar. Drifhlutfall 4,88:1 fannst í framhásingu á Musso og stefnt var á að setja það í hásinguna. Þegar betur var að gáð kom í ljós að Volvo er með Spicer Dana 31 og venjulegt Dana 30 passar ekki. Eftir smá leit kom í ljós að Volvo módel 81‘ og nýrra er með Dana 31 en eldri módel eru með Dana 30.

Þegar þessar upplýsingar lágu fyrir var farið á stúfana og leitað að eldri Volvo hásingu eða nýju hlutfalli í þessa hásingu. Engin nógu gömul hásing fannst og drifhlufall í þessa hásingu kostaði tæpan 200 Þúsund krónur svo horfið var frá þessari hásingu þar sem of mikið vesen var að láta hana passa.

Enn frekari leit var gerð að hlutfalli í Toyota hásinguna sem fannst loks í Japanskir vefverslun. Hlutfallið var fremur dýrt en aðrir möguleikar voru ekki í stöðunni svo það var keypt um miðjan apríl. Eldgos í Eyjafjallajökli tafði svo heimkomu hlutfallsins og fékk það að dúsa í nokkrar vikur á Evrópskum flugvöllum og vöruskemmum. Einnig þurfti að finna nýjan öxul til að skipta út þeim sem var boginn í hásingunni. Ekki var um auðugan garð að gresja í þeim efnum frekar en öðrum þegar kemur að eldgamalli Toyota hásingu en eftir umtalverða leit of fýluferðir fannst öxull í Skagafirði sem var sendur með langferðabíl í borgina við mikinn fögnuð aðstandenda. Öxullinn er kominn í og hlutfallið er væntanlegt í næstu viku og það verður spennandi að sjá hvernig gengur að koma þessu saman en það er von okkar að þessu ævintýri fari senn að ljúka.


 

Leit


Útlit síðu:

qnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica