Hleðslutækið úr Kangoo fékk nýtt hlutverk í byrjun nóvember þegar það var sett í Peugeot 106 sem skólinn á einnig. Í staðinn var fengið Brusa hleðslutæki fyrir Kangoo.

Við prófanir á bílnum í kulda kom í ljós að rafhlöðurnar halda illa spennu og geta ekki gefið nægjanlegt afl til að bíllinn sé nothæfur í kulda og frosti.
Lesa meiraÞegar bílnum var ekið í fyrsta skipti kom í ljós að drifhlutfallið var of hátt til að nýtni bílsins yrði sem best. Hásingin sem var í bílinn var úr Toyota touring 1992 módel. Hún var með hlutafllið 3,15:1. Einnig reyndist annar öxull hásingarinnar vera töluvert boginn svo nauðsynlegt reyndist að skipta um hann.
Lesa meiraFöstudaginn 12. febrúar voru lokaskil á verkefninu. Vörnin var opin öllum nemendum skólans og vel var mætt. Skýrslan taldi á endanum 320 blaðsíður og hana er hægt að nálgast á bókasafni skólans.
